Körfubolti

Lopez fótbrotinn - Nets úr leik í Dwight Howard-eltingarleiknum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Brook Lopez.
Brook Lopez. Mynd/AP
Brook Lopez, miðherji New Jersey Nets í NBA-deildinni, verður frá næstu mánuði eftir að hafa brotið bein í hægri fæti. Lopez fer í aðgerð í dag og verður væntanlega ekkert með fyrr en í  fyrsta lagi í febrúar.

New Jersey Nets er eitt þeirra liða sem er að eltast við Dwight Howard hjá Orlando Magic og þar sem að Brook Lopez var líkleg skiptimynt í þeim leikmannaskiptum er nánast orðið útilokað fyrir Nets að tryggja sér besta varnarmann NBA-deildarinnar undanfarin ár.

Brook Lopez er 23 ára gamall og 213 sm á hæð en hann skoraði 20,4 stig að meðalali á síðasta tímabili. Hann tók þó bara 5,9 fráköst eftir að hafa tekið 8,7 fráköst að meðaltali tímabilið á undan.

Forráðamenn New Jersey Nets brugðust strax við þessum slæmu fréttum og fengu Mehmet Okur frá Utah Jazz í skiptum fyrir valrétt í annarri umferð nýliðavalsins.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×