Körfubolti

NBA í nótt: Wade tryggði Miami nauman sigur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Dwyane Wade var hetja Miami í nótt.
Dwyane Wade var hetja Miami í nótt. Nordic Photos / Getty Images
Miami Heat er enn ósigrað í NBA-deildinni í körfubolta eftir nauman sigur á Charlotte Bobcats í nótt, 96-95, þar sem Dwyane Wade skoraði sigurkörfuna þegar 2,9 sekúndur voru til leiksloka.

Miami hafði byrjað leikinn illa og Charlotte leiddi í hálfleik með 60 stigum gegn 45. Miami náði þó að skora 24 stig gegn tíu í þriðja leikhluta og tryggja sér sigurinn eftir spennandi lokakafla.

Wade fékk boltann í lokasókn Miami, keyrði inn í teig og náði að setja boltann í spjaldið og niður. Charlotte fékk þó tvö skotfæri í lokasókninni en bæði geiguðu - fyrst hjá DJ Augustin og svo DJ White. En litlu mátti muna, sérstaklega í seinna skotinu sem rúllaði af hringnum.

Eftir að Wade setti niður skotið sneri hann sér að Cam Newton, leikstjórnanda Carolina Panthers í NFL-deildinni, og lék eftir Superman-fagnið hans þar sem hann þóttist rífa treyjuna sína af sér.

LeBron James skoraði 35 stig fyrir Miami og Chris Bosh 25. Gerald Henderson skoraði 21 stig fyrir Charlotte og Augustin 20. Boris Diaw átti frábæran leik og skoraði sextán stig, tók sextán fráköst og gaf átta stoðsendingar.

Golden State Warriors heldur áfram að gera það gott en í nótt vann liðið New York Knicks, 92-78. Varamaðurinn Brandon Rush kom sterkur inn af bekknum og skoraði nítján stig fyrir Golden State.

Það gengur hins vegar ekkert hjá Boston sem hefur nú tapað fyrstu þremur leikjum tímabilsins - nú fyrir New Orleans. Jarrett Jack lék sinn fyrsta leik á tímabilinu og skoraði 21 stig og var með níu stoðsendingar.

Þá vann San Antonio sigur á LA Clippers, 115-90. Chris Paul náði sér ekki á strik í leiknum og nýtti aðeins þrjú af tíu skotum sínum. Hann skoraði tíu stig alls í leiknum.

Úrslit næturinnar:

Toronto - Indiana 85-90

Charlotte - Miami 95-96

Washington - Atlanta 83-101

Detroit - Cleveland 89-105

Boston - New Orleans 78-97

Memphis - Oklahoma City 95-98

L.A. Clippers - San Antonio 90-115

Utah - Denver 100-117

Phoenix - Philadelphia 83-103

New York - Golden State 78-92

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×