Körfubolti

Lakers er enn að reyna að fá Paul

Chris Paul.
Chris Paul.
Samkvæmt heimildum ESPN þá hafa forráðamenn LA Lakers ekki enn gefið upp alla von um að fá leikstjórnandann Chris Paul til félagsins. Margir héldu að Lakers hefði gefist upp en svo er ekki.

Mikið baktjaldamakk á sér stað þessa dagana vegna Paul og bæði liðin i Englaborginni vilja fá hann ásamt fleirum.

NBA-deildin á lið New Orleans Hornets sem Paul spilar með og hún vill frekar sjá Paul fara til Clippers en Lakers. Paul hefur sjálfur kosið að tjá sig sem minnst um málið.

Sápuóperan heldur líklega áfram næstu daga.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×