Körfubolti

Odom sár út í Lakers | Vildi ekki fara til Hornets

Odom er kominn til Dallas.
Odom er kominn til Dallas.
Lamar Odom er kominn til Dallas Mavericks frá LA Lakers og hann segir að sér hafi sárnað hvernig Lakers kom fram við hann. Odom átti upprunalega að fara til Hornets í skiptum fyrir Chris Paul en endaði hjá Mavericks á endanum.

"Þetta er algjörlega súrrealískt og allt gerðist á methraða," sagði Odom á blaðamannafundi en það tók víst þrjá tíma fyrir Dallas að fá hann í skiptum fyrir valrétti í nýliðavalinu.

Hvorki Odom né umboðsmaður hans höfðu hugmynd um að leikmaðurinn væri í pakkanum fyrir Chris Paul.

"Ég má víst ekki blóta og reyni því að halda aftur af mér. Ég vildi ekki fara til Hornets. Ég vil alls ekki móðga neinn þar en það er ekki staður fyrir mann sem hefur verið að spila með Lakers og berjast um titla.

"Það særði mig hvernig Lakers stóð að þessu. Mér fannst Lakers sýna mér mikla vanvirðingu me hegðun sinni. Þeir hefðu átt að koma heiðarlega fram og segja mér hvað væri í gangi. Ég hefði getað tekið því að félagið kæmi hreint fram og segði mér að það væri ekkert pláss fyrir mig lengur."

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×