Körfubolti

Paul heillaðist af sögu Clippers

Paul á blaðamannafundinum.
Paul á blaðamannafundinum.
NBA-stjarnan Chris Paul endaði hjá litla bróðir í Los Angeles, Clippers, á meðan stóri bróðir, Lakers, sat aldrei þessu vant eftir með sárt ennið.

Paul vakti athygli fyrir ýmis ummæli á blaðamannafundi í gær þar sem hann sagði meðal annars að saga Clippers væri ein ástæðan fyrir því að hann hafi samþykkt að fara þangað.

"Það er mjög spennandi að vera hérna og hjá þessu ótrúlega félagi sem á svo magnaða sögu," sagði Paul en það verður seint sagt að saga Clippers sé glæsileg. Clippers hefur aðeins komist fjórum sinnum í úrslitakeppnina í 35 ára sögu félagsins.

"Ég hef mikla trú á þessa félagi. Ég trúi á leikmennina hérna og ég vil ná árangri. Ég er spenntur fyrir framtíðinni hérna."

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×