Körfubolti

Eiginkona Kobe sækir um skilnað

Á meðan allt lék í lyndi.
Á meðan allt lék í lyndi.
Vanessa Bryant, eiginkona körfuboltakappans Kobe Bryant, sótti í gær um skilnað frá leikmanninum sem hún hefur staðið þétt við bakið á síðustu ár. Vanessa var til að mynda áberandi þegar Kobe var kærður fyrir nauðgun árið 2003.

Hjónin eiga tvær dætur saman og eru sammála um að þau verði með sameiginlegt forræði yfir stúlkunum. Hún hefur einnig óskað eftir meðlagsgreiðslum.

Þau gáfu frá sér yfirlýsingu í gær þar sem þau óskuðu eftir því að fjölmiðlar virtu einkalíf þeirra og barnanna á þessum erfiðu tímum.

Þau kynntust árið 1998 við upptökur á tónlistarmyndbandi. Sex mánuðum síðar voru þau trúlofuð og giftu sig síðan í apríl árið 2001.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×