Treyja Deron Williams upp í rjáfur eftir aðeins 15 leiki Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. nóvember 2011 10:45
Deron Williams er á heimleið frá Tyrklandi eftir að NBA-deilan leystist og deildin er að fara í gang á nýjan leik. Williams stóð sig það vel með tyrkneska liðinu Besiktas að hér eftir má enginn spila númer átta hjá liðinu. Besiktas kvöddu Deron Williams með því að hengja treyju hans upp í rjáfur. Það er ekki slæmt fyrir mann sem spilaði aðeins fimmtán leiki með liðinu. Athöfnin fór fram fyrir leik Besiktas og hollenska liðsins Zorg en Zekerheid Leiden. Það má sjá myndband frá henni með því að smella hér fyrir ofan. Williams var með 21,8 stig og 6.5 stoðsendingar að meðaltali í leik með Besiktas en hápunkturinn var þegar hann skoraði 50 stig í 105-94 sigri á þýska liðinu Gottingen í Evrópukeppninni í síðustu viku. Deron Williams leikur með New Jersey Nets sem fékk hann í skiptum við Utah Jazz á miðju síðasta tímabili. Hann þykir vera í hópi bestu leikstjórnenda NBA-deildarinnar. Williams kvaddi Tyrkina með því að segja að hann stefndi á það að spila aftur með Besiktas áður en körfuboltaskórnir hans færu upp á hillu. Deron Williams er ekki eini NBA-leikmaðurinn sem er að yfirgefa tyrknesku deildina því þeir Zaza Pachulia, Thabo Sefolosha, Semih Erden og Mehmet Okur voru allir að spila í Tyrklandi á meðan verkbannið var í gangi í NBA-deildinni.
NBA Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira