Körfubolti

Fimm NBA-leikir á jóladag

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dirk Nowitzki fær meistarahringinn á jóladag.
Dirk Nowitzki fær meistarahringinn á jóladag. Mynd/AP
NBA-deildin hefur ákveðið að bæta tveimur leikjum við á jóladag sem verður fyrsti leikdagurinn á nýju 66 leikja tímabili sem varð að veruleika eftir að eigendur og leikmenn náðu saman um nýjan samning.

Eigendur og leikmenn eiga reyndar enn eftir að skrifa undir nýjan tíu ára samning en það er ekkert annað sem bendir til annars en að deildin geti farið af stað um jólin.

David Stern, yfirmaður NBA-deildarinnar, var búinn að gefa það út að það yrði bara þrír leikir á opnunardegi NBA-deildarinnar en nú hafa ráðamenn deildarinnar ákveðið að leikirnir verði fimm talsins.

Fyrsti leikur kvöldsins verður sýndur beint á TNT sjónvarpsstöðinni en síðan verða tvíhöfðar á bæði ABC og ESPN. Það er þegar búið að gefa það út að leikir Boston-New York, Miami-Dallas og Los Angeles Lakers-Chicago fara fram á jóladag en það er enn ekki ljóst hvaða tveir leikir bætast síðan við.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×