Körfubolti

Enginn samningur í NBA - tímabilið í hættu

Derek Fisher fer fyrir hönd leikmanna.
Derek Fisher fer fyrir hönd leikmanna.
Verkbannið í NBA-deildinni stendur enn og tímabilið er sagt vera í talsverðri hættu eftir að leikmenn höfnuðu nýjasta samningstilboði eigenda félaganna. Nokkrar vonir voru bundnar við að leikmenn myndu samþykkja tilboðið en af því varð ekki.

Hefðu leikmenn tekið tilboðinu hefði líklega mátt bjarga 72 leikja tímabili en venjulegt tímabil er 82 leikir.

Leikmannasamtökunum var nánast stillt upp við vegg fyrir atkvæðagreiðsluna af yfirmönnum NBA-deildarinnar. Sagt var að þeir myndu ekki fá betra tilboð. Það voru leikmenn afar ósáttir við.

Málið fer nú aftur á borð lögfræðinga en kurr er milli samningsaðila og fátt sem bendir til þess núna að spilað verði yfir höfuð í NBA-deildinni í vetur.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×