Körfubolti

Eigandi Miami sektaður fyrir ummæli á Twitter

Arison er hér með Pat Riley.
Arison er hér með Pat Riley.
Forráðamenn NBA-deildarinnar eru ekkert allt of hrifnir af því að eigendur liðanna séu að tjá sig um NBA-deiluna og nú hefur David Stern, yfirmaður deildarinnar, slegið á puttana á Micky Arison, eiganda Miami Heat, sem hefur verið að tjá sig um málið á Twitter.

Stern sektaði Arison um 57 þúsund krónur sem er í besta falli hlægileg sekt fyrir hinn moldríka Arison. Eigandinn hafði svarað svekktum stuðningsmanni að deilan væri ekki honum að kenna. Það var víst bannað.

Michael Jordan, eigandi Charlotte Bobcats, var einnig sektaður í september þegar hann gagnrýndi deildina.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×