Körfubolti

Shaq gefur út bók - ætlaði að drepa Kobe

Það var ansi kalt á milli Shaq og Kobe.
Það var ansi kalt á milli Shaq og Kobe.
NBA-goðsögnin Shaquille O´Neal mun gefa út bók um miðjan mánuðinn sem á vafalítið eftir að vekja mikla athygli. Bókin heitir: "Shaq Uncut: My Story". Þegar er byrjað að birta safaríka hluta af bókinni í auglýsingarskyni og í einum þeirra tjáir Shaq sig um deiluna við Kobe Bryant en þeir voru ekki miklir félagar er þeir spiluðu saman með Lakers.

Við skulum grípa aðeins niður í bókina þar sem Shaq tjáir sig um samskiptin við Kobe.

"Ég er að fara á taugum þar sem ég er ekki búinn að fá nýjan samning en Kobe er að fara á taugum þar sem hann gæti verið á leið í fangelsi. Við tökum það út á hvor öðrum. Fyrir tímabilið árið 2003 erum við kallaðir á fund. Varaðir við því að rífast opinberlega. Ef við hættum því ekki verðum við sektaðir. Phil var kominn með nóg af því rétt eins og Karl Malone og Gary Payton.

"Hvað gerist beint í kjölfarið? Jú, Kobe hleypur til Jim Gray og gefur honum viðtal þar sem hann lætur mig heyra það. Hann sagði að ég væri feitur og ekki í neinu formi. Þess utan sagði hann að ég væri að mjólka támeiðslin mín svo ég gæti hvílt mig meira. Hann sagði að meiðslin væru ekki einu sinni alvarleg. (Einmitt, þau enduðu bara ferilinn minn).

"Ég er við það að springa er ég horfi á viðtalið. Það voru aðeins nokkrir klukkutímar síðan við lofuðum að hætta þessu. Hann braut vopnahléð og ég sagði strákunum í liðinu að ég ætlaði að drepa hann."

Svo mörg voru þau orð en bókin kemur út 15. nóvember.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×