Körfubolti

David Stern við leikmenn: Samþykkið tilboð okkar fyrir miðvikudag

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
David Stern ræður ríkjum í NBA-deildinni.
David Stern ræður ríkjum í NBA-deildinni. Nordic Photos / Getty
David Stern, yfirmaður NBA-deildarinnar, hefur sett leikmönnum afarkosti í deilu sinni við eigendur félaganna. Á borðinu sé tilboð sem stendur til miðvikudags. Betra tilboð standi leikmönnum ekki til boða.

Talsmenn leikmannasamtakanna og eigendanna funduðu í átta klukkustundir í nótt án þess að ná sáttum. Fjórar vikur eru síðan tímabilið vestanhafs átti að hefjast og því ljóst að leikmenn og eigendur verða af heilmiklum fjármunum með hverjum deginum sem líður.

Samkvæmt tilboði Stern fá leikmenn á bilinu 49-51 prósent af tekjum deildarinnar. Í fyrri samningi leikmanna við eigendur félaganna, sem rann út í júní, fengu leikmenn 57 prósent af tekjunum en félögin 43 prósent. Eigendur kvarta hins vegar sáran yfir sínum hlut en voru 22 af 30 liðum deildarinnar rekin með tapi á síðasta tímabili.

Jeffrey Kessler, lögfræðingur leikmannasamtakanna, segir að leikmenn muni ekki gefa eftir þrátt fyrir hótanir Stern.

„Leikmenn vilja spila, þeir vilja að tímabilið fari af stað en þeir eru ekki tilbúnir að fórna hagsmunum leikmanna framtíðarinnar í NBA-deildinni vegna hótanna," sagði Kessler.

Stern er hins vegar harður á því að leikmenn muni tapa á því að ganga ekki að samningnum sem sé á borðinu.

NBA

Tengdar fréttir

Búið að blása af fyrstu tvær vikurnar í NBA-deildinni

Það lítur ekki vel út með að spilað verði í NBA-deildinni í vetur og nú er David Stern, yfirmaður deildarinnar, búinn að fella niður fyrstu tvær vikur tímabilsins. Hann segir að það sé himinn og haf á milli deiluaðila sem lofar ekki góðu.

Stern óttast að það verði engir jólaleikir

David Stern, yfirmaður NBA-deildarinnar, segist hafa tilfinningu fyrir því að það verði enginn NBA-bolti um jólin að þessu sinni. Hann segir að ef ekki verði búið að semja í deilunni næsta þriðjudag séu jólaleikirnir úr sögunni.

Enn hægt að bjarga 78 leikja tímabili í NBA

Samkvæmt frétt í New York Post er enn hægt að bjarga 78 leikja tímabili í NBA-deildinni ef lausn finnst í deilunni fyrir lok næstu viku. Tímabilið er venjulega 82 leikir.

NBA tímabilið hangir á bláþræði

Samningar milli NBA og leikmanna hafa verið lausir frá í sumar og hart er deilt. Þegar hefur hundrað leikjum verið aflýst og ekki útséð um frekari áföll. Þorgils Jónsson kynnti sér kjaradeilu milljónamæringanna.

NBA mun líklega aflýsa tveimur vikum í viðbót

Enn þokast lítið í NBA-deilunni. Nú greinir New York Daily News frá því að forráðamenn NBA-deildarinnar muni aflýsa tveimur vikum í viðbót af keppnistímabilinu.

NBA-eigendurnir skiptast í tvo hópa - sumir tilbúnir að gefa eftir

Það berast engar góðar fréttir af NBA-deilunni og menn eru virkilega farnir að spá því að það verði ekkert NBA-tímabil í vetur. Bandarískir fjölmiðlar velta því samt upp hvort að það geti verið að það séu ekki allir eigendurnir sem vilja þvinga leikmenn til að samþykkja 50-50 siptingu á innkomunni.

Enn verið að funda í NBA-deilunni

Deiluaðilar í NBA-verkfallinu héldu áfram að funda annan daginn í röð og gær og ákváðu að honum loknum að hittast einnig í dag.

NBA-deilan: Sextán tíma samningafundur að baki

Eigendur og fulltrúar leikmanna í NBA-deildinni eru að tala saman þótt ekkert bendi til þess að verkfallið í NBA-deildinni sé að fara leysast. Deiluaðilar hittust í New York í gær og stóð samningarfundurinn yfir frá tíu um morguninn fram til klukkan tvö um nóttina eða í heila sextán tíma.

NBA-leikmenn fá ekki laun í næsta mánuði

Stjórn leikmannasamtaka NBA-deildarinnar mun funda á föstudag og fara yfir stöðu mála. Samtökin þurfa einnig að ákveða hvaða leið það vill fara í baráttunni sem er fram undan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×