Körfubolti

Enn hægt að bjarga 78 leikja tímabili í NBA

LeBron og félagar gætu byrjað að spila í desember.
LeBron og félagar gætu byrjað að spila í desember.
Samkvæmt frétt í New York Post er enn hægt að bjarga 78 leikja tímabili í NBA-deildinni ef lausn finnst í deilunni fyrir lok næstu viku. Tímabilið er venjulega 82 leikir.

Stefnan hingað til hefur verið að spila þéttar og bjarga sem mestu af tímabilinu. Þá myndu leikmenn líka fá borgað fyrir heilt tímabil.

Það virðist vera útilokað en með smá tilfæringum og tvíhöfðum á sama stað er enn möguleiki að spilað verði næstum heilt tímabil.

Þá verða menn aftur á móti að ná samningum en ekkert bólar á sátt í málinu.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×