Parker fær bara 240 þúsund krónur á mánuði fyrir að spila með frönsku liði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. október 2011 21:30 Tony Parker var frábær með franska landsliðinu á EM. Mynd/Nordic Photos/Getty
Franski landsliðsmaðurinn og NBA-stjarnan Tony Parker ætlar að spila í frönsku deildinni á meðan verkfallið stendur yfir í NBA-deildinni. Parker setur þó ekki háar launakröfur eins og margar aðrar NBA-stjörnur enda situr hann báðum megin við borðið hjá franska félaginu. Parker mun spila með ASVEL-liðinu sem er frá Villeurbanne rétt hjá Lyon í suður-austur Frakklandi. Parker sagði við franska blaðið L’Equipe að það væri rökrétt fyrir hann að spila með ASVEL en Parker er einmitt varaforseti félagsins. „Ég er næstum því að spila frítt og ef ég verð þarna allt tímabilið þá ætlum við að vinna titilinn," sagði Tony Parker við blaðamann L’Equipe. Parker fær 1995 dollara í mánaðarlaun eða um 240 þúsund íslenskar krónur sem þykja algjörir smáaurar fyrir NBA-leikmenn. Parker fékk 13,5 milljónir dollara fyrir síðasta tímabil sitt með San Antonio eða rúma 1,6 milljarða íslenskra króna. Ef miðað er við að NBA-tímabilið sé átta mánuðir þá var hann með 202 milljónir á mánuði hjá Spurs. Parker hefur unnið þrjá NBA-titla með San Antonio Spurs og þykir með betri leikstjórnendum deildarinnar en hann var með 17,5 stig og 6,6 stoðsendingar að meðaltali í leik á síðustu leiktíð. Hann hjálpaði franska landsliðinu til að vinna silfur á EM á dögunum.
NBA Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira