Körfubolti

Artest slær í gegn í dansþætti

Það verður seint sagt um Artest að hann bindi bagga sína sömu hnútum og samferðamennirnir.
Það verður seint sagt um Artest að hann bindi bagga sína sömu hnútum og samferðamennirnir.
Einhver vinsælasti þáttur vestanhafs er Dancing with the stars. Þar fara frægir í dansskóna og einn af þeim sem taka þátt er enginn annar en vandræðagemsinn Ron Artest sem breytti nafninu sínu nýlega  í Metta World  Peace.

Artest bauð uppá nýja hárgreiðslu í þættinum, ber að ofan með myndarlega slaufu - og sló í gegn.

Hann var reyndar neðstur í þættinum með aðeins 14 stig en söngvarinn Chynna Phillips og leikarinn JR Martinez voru efst með 22 stig.

Í Cha cha cha var sagt um Artest: „Fótaburðurinn var lélegur og hann var úti á túni.“



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×