Körfubolti

Camby handtekinn með kannabis í bílnum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Camby (23) í leik með Portland síðasta vetur.
Camby (23) í leik með Portland síðasta vetur.
Gamla brýnið Marcus Camby er í vondum málum eftir að hann var tekinn með kannabisefni í fórum sínum í Houston.

Camby var að keyra í Porsche-bílnum sínum er lögreglan stöðvaði hann. Við leit í bílnum fundust kannabisefnin.

Körfuboltastjarnan var einnig tekinn með kannabis árið 1997. Hann er 37 ára gamall og lék með Portland Trailblazers í NBA-deildinni á síðustu leiktíð.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×