Körfubolti

Búið að steypa Shaq í brons hjá LSU

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bronsstyttan af Shaquille O'Neal.
Bronsstyttan af Shaquille O'Neal. Mynd/AP
Shaquille O'Neal var viðstaddur þegar LSU vígði nýja styttu af kappanum á dögunum fyrir utan Pete Maravich höllina í Baton Rouge í Louisiana. Þar spilar körfuboltalið Louisiana State University heimaleiki sína og þar lék Shaquille O'Neal með skólaliðinu frá 1989 til 1992.

Shaquille O'Neal er eini íþróttamaðurinn úr Louisiana State University sem hefur verið kosinn bæði leikmaður ársins í háskólaboltanum sem og mikilvægasti leikmaðurinn í atvinnumannadeild. Shaq var með 21,6 stig og 13,5 fráköst að meðaltali á þremur árum sínum í LSU.

Til að heiðra Shaq og frábæran feril hans ákváðu forráðamenn skólans að reisa af honum glæsilega bronsstyttu þar sem hann sést troða boltanum í körfuna þegar hann var enn ungur og nettur.

„Trent Johnson þjálfari sendi mér litla styttu af því hvernig hún myndi líta út en ég bjóst aldrei við að hún yrði svona stór," sagði Shaquille O'Neal.

Styttan er í raunstærð og er 400 kíló að þyngd. Shaq er engin smásmíði (216 sm) og því mun styttan ekki fara framhjá neinum þegar menn nálgast íþróttahöllina.

„Ég er auðmjúkur og þakklátur. Það eru margir frábærir leikmenn sem hafa verið í þessum skóla og þar á meðal eru þeir Pete Maravich, Bob Pettit og Chris Jackson. Mér er sýnd mikil virðing með að vera sá fyrsti sem fær styttu af sér," sagði Shaq.

Shaquille O'Neal lagði skónna á hilluna í sumar eftir að hafa spilað í 19 ár í NBA-deildinni fyrir Orlando Magic (1992–1996), Los Angeles Lakers (1996–2004), Miami Heat (2004–2008), Phoenix Suns (2008–2009), Cleveland Cavaliers (2009–2010) og Boston Celtics (2010–2011).

Hann var með 23,7 stig og 10,9 fráköst að meðaltali í 1207 deildarleikjum og 24,3 stig og 11,6 fráköst að meðaltali í 216 leikjum í úrslitakeppninni.





NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×