Íslenski boltinn

Valskonur ekki í vandræðum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Valur vann í gær 4-0 sigur á Aftureldingu í Pepsi-deild kvenna en liðið er engu að síður sjö stigum á eftir toppliði Stjörnunnar.

Laufey Ólafsdóttir, Rakel Logadóttir, Kristín Ýr Bjarnadóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir skoruðu mörk Vals í gær en liðið mætir KR í úrslitum Valtors-bikar kvenna um næstu helgi.

Valgarður Gíslason, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins, var á leiknum í gær og tók þessar myndir.

Mynd/Valli



Fleiri fréttir

Sjá meira


×