Veiði

Frábær skilyrði og góð veiði í Kjósinni. Mikið af laxi í Langá

Karl Lúðvíksson skrifar
Sævar Haukdal sleppir laxi í Laxá í Kjós
Sævar Haukdal sleppir laxi í Laxá í Kjós
Félagarnir Sævar Haukdal og Rögnvaldur Jónsson voru í síðasta holli í Laxá í Kjós og enduðu með 21 lax á stöngina. Skilyrðin í ánni voru að þeirra sögn frábær. Áin í góðu vatni og fiskur að ganga af krafti, en sérstaklega var mikið af laxi á frísvæðinu frá Káranesfljóti og upp fyrir Hurðarbakshyl. Efsta svæðið hefur verið rólegast en er þó að koma hægt og rólega inn núna þegar fiskurinn dreifir sér um ánna.

Síðustu ár í Kjósinni hafa verið erfið sökum þurrka og vatnssleysis en núna rignir reglulega um landið og engar fréttir borist af ám sem eru annað hvort vatnslitlar eða vatnslausar.



Rögnvaldur að þreyta lax í Hvassaneskvörn í Laxá í Kjós
Við fengum líka fréttir frá Sævari Haukdal þegar þeir fóru úr Kjósinni beint í Langá og þar voru þeir búnir að landa nokkrum löxum á fyrstu vaktinni. En úr Langá er það að frétta að svo mikill gangur er á laxagöngum að fiskurinn liggur í lögum í Strengjunum á leið sinni upp ánna og virðist stefna í frábært ár í Langá. Áin er í góðu vatni og búin að vera í allt sumar, og nóg virðist vera af laxi sem er að veiðast á öllum stöðum í ánni.






×