Körfubolti

Dwyane Wade og Chris Bosh spenntir fyrir því að spila í Evrópu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dwyane Wade
Dwyane Wade Mynd/AP
Margir NBA-leikmenn eru að skoða möguleikana á því að spila í evrópska körfuboltanum næsta vetur ef verkfallið í NBA-deildinni leystist ekki í bráð. Meðal þeirra eru Miami-leikmennirnir Dwyane Wade og Chris Bosh.

Miami Herald birti stutta frétt um það að Wade og Bosh séu opnir fyrir tilboðum frá Evrópu. Eltingarleikur tyrkneska liðsins Besiktas við Kobe Bryant hefur vakið mikla athygli og tyrkneska félagið er þegar búið að gera samning við Deron Williams.

Ekki fylgir sögunni hvaða lið hafa áhuga á því að fá til sín Dwyane Wade og Chris Bosh eða það hvað LeBron James ætlar að gera. Það gekk mikið á í NBA-deildinni síðasta vetur þegar þeir þrír sameinuðust undir merkjum Miami Heat.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×