Körfubolti

Frank að taka við Detroit Pistons

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Frank með Boston í fyrra.
Frank með Boston í fyrra.
Samkvæmt heimildum AP-fréttastofunnar ætlar Detroit Pistons að bjóða Lawrence Frank þjálfarastöðu félagsins en þjálfarastaðan hefur verið laus í rúman mánuð eftir að John Kuester var rekinn.

Frank stýrði liði New Jersey Nets í sex og hálft ár en var rekinn í lok árs 2009. Hann var síðan aðstoðarþjálfari hjá Boston á síðustu leiktíð.

Hinn nýi eigandi Pistons, Tom Gores, er að byggja upp nýtt lið í Detroit og vildi vanda valið á þjálfara liðsins.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×