Veiði

Frábær veiði í Breiðdalsá og Hrútafjarðará að fara í gang

Karl Lúðvíksson skrifar
Einn vænn hjá Birni Guðmundssyni af Skammadalsbreiðu
Einn vænn hjá Birni Guðmundssyni af Skammadalsbreiðu Mynd af www.strengir.is
Þrátt fyrir flóð þar sem 2-3 dagar nánast duttu út í veiði er laxveiðin núna fjórföld í Breiðdalsá miðað við sama tíma í fyrra eða komin strax í 75 laxa. Bara í gær komu 18 laxar og lax að hellast inn, aðallega stórlax en þó strax komnir smálaxar í bland sem lofar góðu. Stærstu fiskar eru um 88 cm og almennt er allur laxinn í gríðarlega góðum holdum, t.d. mældist lax í gær sem var 88 cm að lengd en ummálið var 47 cm!

Veiðin er vel dreifð um ánna en þó hefur Tinna verið einna gjöfulust. Þar var eftir hádegi í dag sett í sex laxa sem allir fóru af, þar einn dreki sem fór eftir 45 min baráttu og er veiðimaðurinn og gædinn sáu laxinn loks eftir langa viðureign var sporðblaðkan eins og á skóflublað sögðu þeir. Eru þeir þó ýmsu vanir í Breiðdalsá, enda hefur þessi veiðimaður fengið þar nokkra í 20 punda klassanum undanfarin ár.

Glímt við einn stóran í Hrútu í veiðistaðnum BálkMynd af www.strengir.is
Hrútafjarðará hefur gefið á milli 20-30 laxa og flesta væna. Vatnið er gott að sögn veiðimanna þar og ekki eru líkur á vatnsleysi þar í sumar eins og svo oft áður, enda snjóalög með eindæmum mikil eftir kalt vor.

Birt með góðfúslegu leyfi Strengja






×