Veiði

Fréttabréf Landssambands Veiðifélaga er komið út

Fréttabréf Landssambands Veiðifélaga er komið út. Í fréttabréfinu er meðal annars fjallað um aðalfund Landssambands veiðifélaga sem var haldinn dagana 10. - 11. júní sl. Aðalfundurinn var vel sóttur en hann sátu 39 fulltrúar frá 41 veiðifélagi víðsvegar að af landinu, auk stjórnar og gesta. Á aðalfundinum fjölluðu þeir Stefán Már Stefánsson, prófessor, og Eyvindur G. Gunnarsson, dósent, við Lagadeild Háskóla Íslands um skilgreiningu, markmið og starfsemi veiðifélaga. Sigurður Guðjónsson, forstjóri Veiðimálastofnunar flutti erindi um stofnerfðafræðirannsóknir á löxum.

Fram kom að hérlendis virðast vera tveir meginstofnar laxa sem skiptast í marga undirstofna. Þá virðist verulegur erfðafræðilegur munur á íslenskum laxi og laxastofnum nágrannalandanna.

Hér er linkur á fréttabréfið: https://angling.is/is/landssamband-vf/frettabref-lv/






×