Veiði

Fluguveiðinámskeið á Þingvöllum

Karl Lúðvíksson skrifar
Þeoir geta verið stórar bleikjurnar í Þingvallavatni
Þeoir geta verið stórar bleikjurnar í Þingvallavatni Mynd af www.veidikortid.is
Veiðikortið, Veiðiheimur og Þjóðgarðurinn á Þingvöllum standa að fluguveiðinámskeiði á Þingvöllum 17. júlí næstkomandi á milli kl. 9-14. Að auki er boðið upp á leiðsögn um vatnið.

Dagskrá:

09:00 Mæting í upplýsingamiðstöðina á Þingvöllum (fyrir ofan Öxará). Fyrirlestur um almenna vatnaveiði og farið verður yfir mismunandi veiðiaðferðir sem og ýmsan veiðibúnað.

11:00 Farið verður yfir þær silungaflugur sem verða að vera í boxinu og farið yfir alla helstu hnútana.

12:00 Léttar veitingar í boði fyrir þáttakendur. Síðan verður farið niður að vatni og farið yfir helstu atriði flugukasta með einhendu.

13:30 Námskeiðinu lýkur með kastkeppni þar sem vinningar verða í boði. Í framhaldi munu kennarar frá Veiðiheim aðstoða þá sem vilja frameftir degi. Eftir námskeiðið áttu að vera orðin/n full fær í að veiða á Þingvöllum.

ATH: takmarkaður fjöldi þátttakenda.

Þátttökugjald er kr. 4500-






×