Veiði

11 punda, spikfeitur og silfurgljáandi urriði úr Mjósundi í Laxá í Mývatnssveit

Frétt frá Vötn og veiði skrifar
Það hefur verið kalt í veðri á urriðasvæðunum fyrir norðan nú að undanförnu. VoV talaði við Bjarna Höskuldsson umsjónarmann veiðanna þar og sagði hann hitann vera í eins stafs tölu. „Það er kalt hérna, hitinn hefur verið þetta 5 – 9 stig“, sagði Bjarni. Hann tjáði okkur einnig að erlendur veiðimaður, Michael Benson, hefði veitt 11 punda stórurriða í Mjósundi í gær: „Þetta var fallegur fiskur, silfurgljáandi, eins og Mjósundsfiskar eru gjarnan, 73 cm langur og ummálið var 40 cm.

Meira á https://www.votnogveidi.is/frettir/eru-thau-ad-faann/nr/3932






×