Körfubolti

Kobe sagður hafa farið í aðgerð í Þýskalandi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Los Angeles Times greinir frá því í dag að körfuboltamaðurinn Kobe Bryant hafi farið í aðgerð í Þýskalandi til þess að styrkja á sér hægra hnéð.

Lakers hefur ekki staðfest fréttina en það fór leynt að Kobe hefði skotist til Þýskalands í aðgerðina. LA Times segist hafa fjóra heimildamenn sem staðfesti fréttina. Af hverju Lakers vill endilega halda þessu leyndu kemur ekki fram.

Bryant, sem verður 33 ára í næsta mánuði, hefur verið slæmur í hnénu síðustu ár og hefur farið í þrjár aðgerðir á hnénu frá árinu 2003.

Kobe gat lítið æft síðasta vetur og spilaði síðan minna en oft áður.

Bryant vildi ekkert tjá sig um málið við LA Times.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×