Veiði

Norðurá komin í 400 laxa

Karl Lúðvíksson skrifar
Mynd www.svfr.is
Það hefur mikið breyst við Norðurá undanfarna tvo daga. Veiðin hefur tekið mikinn kipp í kjölfarið á fyrstu alvöru laxagöngum sumarsins.

Af öllum svæðum eru á hádegi í dag komnir um 400 laxar. Mikið vatn er í ánni eftir rigningar í gær, og rauk vatnsmagnið úr 17 í 24 rúmmetra samkvæmt vatnsmæli í Stekk.

Mikill lax liggur neðan við Laxfoss og eins á milli fossa en Dalurinn er enn ekki kominn inn að ráði. Þó hafa stangirnar tvær ofan Glanna úr nógu að moða og lax að veiðast daglega þar efra. Holl sem lauk veiðum í dag var með um 90 laxa veiði.

Birt með góðfúslegu leyfi SVFR






×