Veiði

Styttist í opnun Setbergsár

Karl Lúðvíksson skrifar
Mynd af www.svfr.is
Árnefnd Setbergsár vinnur nú hörðum höndum að undirbúningi opnun árinnar. Áin opnar þann 15.júlí næstkomandi.  Miklar lagfæringar hafa verið gerðar á veiðihúsinu, sem satt best að segja var orðið dálítið þreytt. Að auki var settur upp teljari í laxastiganum í Illafossi og það verður fróðlegt að fylgjast með göngum þarna í sumar. Á myndinni má sjá Hermann Valsson formann árnefndar segja þeim Hallgrími Hólmsteinssyni og Magnúsi Hermannsyni fyrir verkum.

Af veiði á Snæfellsnesi er það helst að frétta að ekkert lát virðist á góðri veiði í Hraunsfirði, þar er mikið af bleikju gengið í lónið.  Eins hefur veiðin á vatnasvæði Lýsu glæðst og ágætis veiði hefur verið í Hítarvatni síðustu daga.

Birt með góðfúslegu leyfi SVFR





×