Veiði

Ytri Rangá ennþá frekar róleg

Karl Lúðvíksson skrifar
Mynd af www.lax-a.is
Alls komu 13 laxar upp í Ytri Rangá í gær og menn urðu varir við miklu meira líf en hefur verið undanfarið.

Það er ekki laust við að fyrsta vikan í júlí hafi valdið vonbrigðum, enda hefur all jafna verið ágætis veiði þessa daga á undanförnum árum. En eins og víðast hvar annars staðar hefur laxinn látið bíða eftir sér, vonandi horfir nú til betri vegar.

En þeir sem eiga daga í ánni í sumar þurfa varla að kvíða neinu því áin er búin að vera í feiknagír undanfarin ár þökk sé góðum sleppingum.  Þetta er bara spurning um það hvenær fyrstu stóru göngurnar mæta í ánna.

Frétt frá Lax-á






×