Veiði

Veiðin í Langá á Mýrum þokast upp á við

Karl Lúðvíksson skrifar
Lax þreyttur við Neðri Hvítstaðahyl í Langá
Lax þreyttur við Neðri Hvítstaðahyl í Langá Mynd Sævar Haukdal
Veiðin í Langá á Mýrum hefur verið brokkgeng frá opnun. Veiðibókin stendur á hádegi í dag í 150 löxum sem er mun minna en undanfarin ár.

Það er frábært vatn í Langá og fiskur er vel dreifður fyrir neðan Sveðjufoss. Fyrstu laxarnir komu úr Bjargstreng á "Fjallinu" þegar að tveir laxar fengust þann 4. júlí.

Sumarið í sumar minnir um margt á veiðitímabilið 2007 þegar að göngur voru seint á ferðinni. Þegar að upp var staðið að hausti var þar þó á ferðinni eitt af betri tímabilum Langár.

Mjög breytilegt er hvaða svæði eru vænlegust til veiða. Framan af var miðsvæði árinnar að gefa mest, svo datt svæði þrjú inn sem besta svæðið (Stangarhylssvæðið) og upp á síðkastið hefur neðsta svæðið gefið mest.

Er það vonandi merki um auknar göngur í Langá.

Birt með góðfúslegu leyfi SVFR





×