Veiði

Vatnsdalsá opnaði í morgun

Karl Lúðvíksson skrifar
Lord Stu og Sir Beer kampakátir á góðri stund.
Lord Stu og Sir Beer kampakátir á góðri stund. Mynd: www.vatnsdalsa.is
Núna er allt að komast á fullt.  Árnar opna hver af annari og það er ekki að sjá annað en það stefni í gott sumar miðað við þessa byrjun.  Langá opnar með 13 laxa og það bara á fyrri vaktinni, Kjósin með 9 laxa og það eru fleiri stórar ár að opna á næstunni.

Vatnsdalsá er líka komin í gang og þar voru teknir nokkrir laxar í morgun við erfið skilyrði.  Mikið vatn og kalt er í ánni, sem veit bara gott þegar líða tekur á sumarið því þá er góður vatnsforði á hálendinu.  Auk þessara laxa veiddist mikið af vænum silung.

Það verður fróðlegt að sjá hvernig aðrar ár í Húnaþingi fara af stað en þær opna næstu daga.

 






×