Körfubolti

Arenas farinn að planka

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Arenas er hugmyndaríkur í plankinu.
Arenas er hugmyndaríkur í plankinu.
Körfuboltastjarnan óstýriláta, Gilbert Arenas, fylgir straumnum og hann er nú farinn að planka líkt og óður væri. Hann birtir ansi skemmtilegar myndir af sér að planka á Twitter-síðu sinni.

Þar má sjá Arenas planka á lóðum, á hlaupabretti og jafnvel í heita pottinum sínum.

Stutt er síðan Arenas byrjaði að nota Twitter á nýjan leik og hefur hann algjörlega farið hamförum síðan hann kom aftur á Twitter. Eins og marga grunaði kom hann sér fljótlega í vandræði á Twitter en hann hefur nú ákveðið að hætta öllu veseni og snúa sér að planki.

Hægt er að sjá myndirnar af Arenas að planka í albúminu hér að neðan.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×