Tónlist

Cyndi Lauper dýrkaði Sykurmolana

Harpa var fyrsti viðkomustaður hinnar 57 ára gömlu Cindy Lauper á tónleikaferðalagi hennar um Evrópu sem stendur fram í lok júlí. Hér sést hún í miklu stuði á tónleikunum í gærkvöld.
Harpa var fyrsti viðkomustaður hinnar 57 ára gömlu Cindy Lauper á tónleikaferðalagi hennar um Evrópu sem stendur fram í lok júlí. Hér sést hún í miklu stuði á tónleikunum í gærkvöld. Mynd/Getty
„Ég veit ekki mikið um Ísland, en mig hefur alltaf langað til að heimsækja landið. Þegar umboðsmaðurinn minn lét mig vita að það væri möguleiki á að halda tónleika á Íslandi varð ég mjög ánægð," segir bandaríska söngkonan Cyndi Lauper, sem hélt fyrstu tónleikana á Evróputúr sínum í Hörpu í gærkvöld. Tónleikarnir þóttu heppnast vel þar sem söngkonan lék á alls oddi, að sögn tónleikagests.

Cyndi sló í gegn um miðjan níunda áratuginn með ofursmellum á borð við Girls Just Want to Have Fun og Time After Time. Rætt er við hana í helgarblaði Fréttablaðsins og er hægt að nálgast viðtalið hér.

Mynd/Getty
„Ég veit að landið er mjög fallegt og hef heyrt margar sögur af eldfjöllum og risastórum jöklum. Svo er ein af mínum uppáhaldshljómsveitum, Sykurmolarnir, frá Íslandi. Ég dýrkaði þá hljómsveit þegar hún kom fyrst fram á sjónarsviðið og ég er enn á þeirri skoðun að Björk sé snillingur," segir Cindi meðal annars í viðtalinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.