Veiði

Laxar farnir að sjást víða

Karl Lúðvíksson skrifar
Fallegum laxi landað í Brynjudalsá
Fallegum laxi landað í Brynjudalsá Mynd: www.agn.is
Núna næstu daga opna fleiri ár og það stefnir í góða opnun í þeim flestum ef eitthvað er að marka fréttir af laxgengd í þær ár sem ekki eru opnar.  Það hafa sést laxar í Leirvogsá, Brynjudalsá, Flókadalsá, Reykjadalsá, Grímsá, Víðidalsá, Miðfjarðará svo að nokkrar séu nefndar.  Þetta veiðisumar er að komast á fullt skrið.

Það sem er helst að gleðja veiðimenn um allt land er að þrátt fyrir kulda þá er vatnsbúskapurinn í ánum góður og það veit á gott því aðstæðurnar í ánum verða þá betri til veiða.  Síðustu tvö sumur hafa verið alveg afleit í vatni en veiðin samt verið góð.  Hítará var t.d. vatnsminni en elstu menn muna og Langá með sína vatnsmiðlun aldrei farið jafn neðarlega í vatni og hún gerði 2010.  Veiðin í báðum ánum var þó mjög góð.

Núna um 20. júní opna margar ár og við komum til með að fylgjast með því hér á Veiðivísi og hvetjum ykkur til að segja okkur fréttir af ánni þinni.  Sendu okkur póst á kalli@365.is






×