Körfubolti

Shaq ætlar ekki að fara út í þjálfun

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Shaquille O´Neal tilkynnti á Twitter að hann væri hættur í körfubolta en hann er nú farinn að mæta í viðtöl til þess að ræða um ákvörðun sína.

Shaq segist engan áhuga hafa á því að hella sér út í þjálfun og þarf líklega að fara í aðgerð til þess að laga þrálát meiðsli.

Tröllið átti magnaðan feril þar sem hann skoraði 23,7 stig, tók 10,9 fráköst, gaf 2,5 stoðsendingar, varði 2,3 skot og var með 58,2 prósent skotnýtingu að meðaltali á 19 ára ferli sínum.

Lakers mun heiðra hann með því að hengja treyjuna hans upp í rjáfur.

Shaq hefur brallað ýmislegt á ferlinum og meðal annars gefið út rappplötur og leikið í kvikmyndum. Hann telur líklegt að hann verði áfram í skemmtanbransanum.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×