Veiði

Fyrstu laxarnir komnir á land

Karl Lúðvíksson skrifar
Tekið á laxi við Stokkhylsbrot í Norðurá
Fyrsti laxinn er kominn úr Norðurá. Það var Ásmundur Helgason, stjórnarmaður í Stangveiðifélagi Reykjavíkur sem veiddi fyrsta laxinn á Stokkhylsbrotinu og það var 84 sentimetra löng nýgengin hrygna, líklega um 13-15 pund.

Laxinn tók á heimasmíðaða flugu Ásmundar, sem nefnist Glaði tvíburinn. Laxinn kom á land um 9:15 eftir rétt um 20 mínútna viðureign en samkvæmt heimildum okkar hafa nokkrar laxar líka kvatt aðra veiðimenn eftir stutta baráttu.

Það er gott vatn í Norðurá þessa dagana og veiðimenn sem eiga daga þar framundan á næstunni ættu að geta hlakkað til. Það er gífurlega mikill munur á ánni frá síðastliðnu sumri. En skilyrðin í morgun voru kannski ekki þau bestu, en það var 5 stiga hiti og rigning. En veiðimenn bölva rigninu seint svo að þetta gefur frekari bjartsýni um að það sé ekki annað þurrkasumar framundan.

Veiði hófst einnig í Blöndu í morgun og eru það veiðifélagarnir Þórarinn Sigþórsson, Egill Guðjohnsen og Páll Magnússon sem meðal annars opnuðu þar í morgun. Samkvæmt okkar heimildum var það Páll Magnússon sem tók fyrsta fiskinn í morgun en það hefur ekki fengist staðfest klukkan hvað það var.

Við skellum myndunum af þessum fyrstu löxum sumarsins um leið og þær berast.






×