Körfubolti

Jackson mun þjálfa Golden State

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Golden State Warriors hefur ráðið Mark Jackson sem þjálfara NBA liðsins
Golden State Warriors hefur ráðið Mark Jackson sem þjálfara NBA liðsins Getty Images
Golden State Warriors hefur ráðið Mark Jackson sem þjálfara NBA liðsins en hann hefur aldrei þjálfað NBA lið áður. Jackson lék í 17 ár sem leikstjórnandi í deildinni með New York, Clippers, Indiana, Denver, Toronto, Utah og Houston. Á undanförnum árum hefur hann starfað sem körfubolta sérfræðingur í sjónvarpi. Jackson er þriðji á lista yfir stoðsendingahæstu leikmenn NBA deildarinnar frá upphafi en hann var valinn nýliði ársins vorið 1988.

Keith Smart, sem þjálfaði liðið á síðustu leiktíð, var rekinn á dögunum af nýjum eigendum liðsins sem ætlar sér stóra hluti í framtíðinni.

Jackson er 46 ára gamall og gerði hann þriggja ára samning. Hann mun fá um 700 milljónir kr. í laun á samningstímanum. Jerry West, sem lagði grunninn að velgengni LA Lakers á árum áður sem framkvæmdastjóri liðsins, settist nýverið í stjórn Golden State og er West sannfærður um að Jackson sé rétti maðurinn í starfið þrátt fyrir að hann hafi enga reynslu sem þjálfari.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×