Körfubolti

NBA: Chris Bosh er klár í slaginn gegn Dallas í kvöld

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Chris Bosh skorar hér sigurkörfuna í þriðja leiknum gegn Dallas.
Chris Bosh skorar hér sigurkörfuna í þriðja leiknum gegn Dallas. AP
Chris Bosh leikmaður Miami Heat er klár í slaginn í kvöld þegar fjórði leikurinn í úrslitum NBA deildarinnar fer fram en Miami er 2-1 yfir gegn Dallas Mavericks. Bosh meiddist í þriðja leiknum þegar hann fékk putta í vinstra augað en hann kláraði samt leikinn og skoraði hann mikilvæga körfu undir lok leiksins sem reyndist vera sigurkarfan í 88-86 sigri liðsins.

Bosh hefur mátt þola mikla gagnrýni í vetur en hann hefur alls sýnt þann stöðugleika sem krafist er af honum. „Ég reyndi bara að spila körfubolta þótt að augað hafi verið bólgið og ég man ekki hvort ég sá eitthvað með auganu – það skipti engu máli, ég varð að spila og gera mitt besta," sagði Bosh eftir æfingu liðsins í gær. Leikurinn verður sýndur á Stöð 2 sport í kvöld og hefst útsending kl. 1 eftir miðnætti.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×