LeBron James: Mánuður eftir af hatrinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. maí 2011 09:15 LeBron James. Mynd/AP
LeBron James fór á kostum í úrslitum Austudeildarinnar þar sem Miami Heat vann 4-1 sigur á Chicago Bulls og tryggði sér sæti í lokaúrslitunum á móti Dallas. Miami-liðið er nú aðeins fjórum sigrum frá meistaratitlinum sem þeir lofuðu stuðningsmönnum sínum í júlí síðastliðnum. James var með 25,8 stig, 7,8 fráköst, 6,6 stoðsendingar, 2,4 stolna bolta og 1,8 varin skot að meðaltali í leik í einvíginu en hann lék 45,2 mínútur að meðaltali. Það sem meira er að hann hélt Derrick Rose, besta leikmanni NBA í vetur, í aðeins 6,3 prósent skotnýtingu þegar hann dekkaði hann í einvíginu. Rose hitti aðeins úr 1 af 10 skotum á móti honum í leiknum í nótt. „Það enginn léttir að vera kominn í úrslitin því við eigum verk eftir að vinna. Við höfum smá tíma til að átta okkur á því sem við höfum afrekað en síðan þurfum við að fara undirbúa okkur fyrir Dallas. Við tökum því ekki sem sjálfsögðum hlut að vinna þennan leik eða vera meistarar í Austudeildinni," sagði LeBron James en hefur mátt þola harða og óvæga gagnrýni síðan að hann setti "ákvörðunina" á svið í beinni sjónvarpsútsendingu fyrir tæpu ári síðan.LeBron James.Mynd/AP„Ég skil alveg að það voru margir ósáttir við að ég færi til Miami. En ég gerði mér líka grein fyrir því að þetta var það besta í stöðunni fyrir mig, það besta fyrir fjölskyldu mína og það besta fyrir mig sem atvinnuíþróttamann. Hvað er 26. í dag. Við eigum eftir mánuð, mánuð eftir að stanslausu hatri en við sjáum síðan til hvað gerist á næsta ári," sagði James en það er ljóst að NBA-meistaratitill myndi breyta miklu fyrir hann og þá meðferð sem hann hefur mátt þola í fjölmiðlum og íþróttahúsum NBA-deildarinnar í vetur.
NBA Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Í beinni: Man. City - Arsenal | Risaleikur í enska Enski boltinn Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira