Körfubolti

NBA: Miami jafnaði metin

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Wade keyrir hér að körfu Chicago í nótt.
Wade keyrir hér að körfu Chicago í nótt.
LeBron James og Dwyane Wade rifu sig upp eftir slakan fyrsta leik gegn Chicago og léku báðir áfbragðsvel í nótt er Miami jafnaði einvígi liðanna í úrslitum Austurdeildar NBA-deildarinnar. Lokatölur 75-85.

James skoraði 29 stig og Wade 24 en þeir félagar voru með samtals 33 stig í fyrsta leiknum sem Chicago vann. Udonis Haslem kom einnig sterkur af bekknum með 13 stig.

Derrick Rose var stigahæstur hjá Bulls með 21 stig en hann var ekki að hitta vel.

Mikið jafnræði var með liðunum lengstum í leiknum sem var stórskemmtilegur og vel spilaður. James skoraði aftur á móti 9 af síðustu 12 stigum Heat á meðan Chivago virtist ekki geta keypt körfu á lokamínútunum.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×