Körfubolti

Derrick Rose kominn í hóp með Jordan - valinn bestur í NBA

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Derrick Rose.
Derrick Rose. Mynd/AP
Bandarískir fjölmiðlar hafa heimildir fyrir því að Derrick Rose hjá Chicago Bulls hafi verið kosinn besti leikmaður NBA-deildarinnar á þessu tímabili en það kemur reyndar ekki mörgum á óvart. LeBron James hefur verið besti leikmaður deildarinnar undanfarin tvö ár.

Derrick Rose setur með þessu nýtt NBA-met en hann verður yngsti leikmaður sögunnar til að vera kosinn mikilvægasti leikmaður deildarinnar. Rose var með 25 stig og 7.7 stoðsendingar að meðaltali á tímabilinu og hjálpaði Chicago Bulls að ná besta árangri allra liða í deildarkeppninni.

Rose er aðeins 22 ára gamall og bætir met Wes Unseld sem var 23 ára þegar hann sem leikmaður Baltimore Bullets var kosinn mikilvægasti leikmaðurinn tímabilið 1968-69. Derrick Rose kemst líka í hóp með Michael Jordan en þeir eru einu leikmennirnir í sögu Chicago Bulls sem hafa fengið þessi virtu verðlaun.







Derrick RoseMynd/AP
Rose varð sjöundi stigahæsti leikmaður deildarinnar og endaði í 10. sæti yfir flestar stoðsendingar. Hann var eini leikmaður deildarinnar sem komst inn á topp tíu á báðum þessum listum.

Michael Jordan var eini leikmaður Bulls sem hafði náð slíku á einu tímabili en þegar Jordan var stigahæstur tímabilið 1988-89 (32,5 í leik) þá varð hann einnig í 10. sæti í stoðsendingum.

Rose var einnig með 4,1 frákast að meðaltali í leik en það eru aðeins sex aðrir leikmenn í sögu NBA sem hafa náð því að vera með að minnsta kosti 25 stig, 7,7 stoðsendingar og 4 fráköst að meðaltali í leik á heilu tímabili. Hinir eru Michael Jordan, Oscar Robertson, Jerry West, Larry Bird, Dwyane Wade og LeBron James.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×