Körfubolti

NBA í nótt: Allen tryggði Boston sigur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ray Allen fagnar sigrinum í nótt.
Ray Allen fagnar sigrinum í nótt. Mynd/AP
Ray Allen var hetja Boston þegar að hann tryggði sínum mönnum sigur á New York eftir æsispennandi leik í NBA-deildinni í nótt. Boston er því komið í 1-0 forystu í rimmu liðanna í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.

Allen setti niður þriggja stiga körfu þegar að ellefu sekúndur voru til leiksloka og kom Boston yfir, 87-85. Reyndust það lokatölur leiksins.

New York hafði verið með frumkvæðið nánast allan leikinn en gaf eftir á lokakaflanum. Carmelo Anthony missti boltann í næstsíðustu sókn New York eftir að hafa fengið dæmt á sig sóknarbrot og skot hans geigaði svo á lokasekúndum leiksins.

Allen var stigahæstur hjá Boston með 24 stig og Paul Pierce kom næstur með átján. Kevin Garnett var með fimmtán stig og þrettán fráköst.

Amar'e Stoudemire átti frábæran leik í liði New York og skoraði 28 stig. Það dugði þó ekki til á endanum. Anthony skoraði samtals fimmtán stig í leiknum.

New York varð þar að auki fyrir áfalli í leiknum þar sem að Chauncey Billups fór meiddur af velli í lok fjórða leikhluta. Hann virtist hafa meiðst á hné og óvíst hvort hann nái næsta leik liðanna á aðfaranótt miðvikudags.

Oklahoma City vann Denver, 107-103, í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppninni. Kevin Durant skoraði 41 stig fyrir Oklahoma City og Russell Westbrook 31.

Lokakafli leiksins var dramatískur en miðherjinn Kendrick Perkins skoraði mikilvæga körfu þegar rúm mínúta var til leiksloka og kom Oklahoma City yfir, 102-101. Perkins blakaði boltanum ofan í körfuna en leikmenn Denver vildu meina að um ólöglega körfu hafi verið að ræða. Karfan fékk þó að standa gild.

Nene skoraði 22 stig fyrir Denver og Danilo Gallinari átján.

NBA

Tengdar fréttir

NBA: Hornets vann Lakers óvænt í Staples Center

New Orleans Hornets byrjar úrslitakeppnina í NBA-deildinni af miklum krafti, en þeir gerðu sér lítið fyrir og sigruðu meistarana í L.A. Lakers, 109-100, í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppninni og hafa því tekið forystu í einvíginu 1-0. Til að koma sér í næstu umferð í keppninni þarf að vinna fjóra leiki.

NBA: Memphis kom á óvart og vann San Antonio

Memphis Grizzlies kom verulega á óvart í kvöld þegar liði lagði San Antonio Spurs, 101-98, á útivelli í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í Vesturdeild NBA deildarinnar í körfuknattleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×