Körfubolti

Barnið hans Nash er hvítt eftir allt saman

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Steve Nash.
Steve Nash.
Sögusagnir um að barn Steve Nash og fyrrverandi eiginkonu hans væri svart voru ekki á rökum reistar. Eiginkonan fyrrverandi hefur nú stigið fram í sviðsljósið, birt mynd af sér með börnunum og barnið er svo sannarlega hvítt.

Slúðurmiðlar voru uppfullir af þessum fréttum fyrir tveim dögum síðan. Þá átti faðirinn að vera Jason Richardson. Síðar um daginn var hermt að faðirinn væri ekki Richardson heldur Leandro Barbosa sem einnig lék með Nash hjá Phoenix.

Nú hefur komið á daginn að það var ekki kona Nash sem hélt fram hjá heldur hann sjálfur. Nash hélt fram hjá konunni sinni með 22 ára stúlku og þau eru enn saman í dag. Nash sótti um skilnað daginn sem barnið fæddist.

Þessi slúðursaga er búin að fara í nokkra hringi og þeir eru til sem halda því fram að barnið sé svart þrátt fyrir allt saman. Eiginkonan fyrrverandi hafi einfaldlega fengið lánað hvítt barn fyrir myndatökuna. Það verður þó að teljast frekar hæpin saga.

Steve Nash hefur ekkert viljað tjá sig um málið en óskaði þó eftir því að friðhelgi fjölskyldunnar væri virt.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×