Körfubolti

NBA í nótt: Melo og Stoudemire öflugir

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Anthony og Stoudemire taka því rólega á bekknum í fjórða leikhluta í nótt.
Anthony og Stoudemire taka því rólega á bekknum í fjórða leikhluta í nótt. Mynd/AP
Carmelo Anthony og Amare Stoudemire skoruðu samanlagt tæplega helming stiga New York í sigri liðsins á Utah, 131-109, í NBA-deildinni í nótt.

Anthony skoraði 34 stig og Stoudemire 31 en þeir eru báðir meðal stigahæstu leikmanna deildarinnar allrar. Anthony gekk nýverið til liðs við New York frá Denver.

Þeir voru frábærir í nótt og hittu samtals úr 24 af 31 skoti sínu. Báðir hvíldu allan fjórða leikhluta en Stoudemire fékk ekki einu sinni að klára þriðja leikhluta. Þetta var í fyrsta sinn sem Anthony skorar meira en 30 stig í leik fyrir New York.

Chauncey Billups, sem einnig kom til New York frá Denver fyrir stuttu, spilaði ekki með vegna meiðsla í nótt en Toney Douglas skoraði 20 stig í hans fjarveru.

New York er í sjötta sæti Austurdeildarinnar og á góðri leið með að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni í fyrsta sinn í sjö ár. Það horfir því til betri tíðar hjá þessu sögufræga liði.

Al Jefferson skoraði 36 stig fyrir Utah og tók tólf fráköst þar að auki. Liðið er nú í tíunda sæti Vesturdeildarinnar og virðist vera að missa af lestinni nú þegar lítið er eftir af deildakeppninni.

Portland vann Orlando, 89-85. LaMarcus Aldridge skoraði 24 stig fyrir Portland og Andre Miller fimmtán. Dwight Howard var í leikbanni og lék því ekki með Orlando í nótt.

Chicago vann New Orleans, 85-77. Derrick Rose skoraði 24 stig fyrir Chicago en Chris Paul gat ekki spilað með New Orleans þar sem hann fékk heilahristing í leik með liðinu í gærnótt.

LA Clippers vann Charlotte, 92-87. Blake Griffin skoraði sautján stig og tók fimmtán fráköst fyrir Clippers.

Memphis vann Oklahoma City, 107-101. Mike Conley og Tony Allen skoruðu 20 stig hvor og Marc Gasol var með átján fyrir Memphis.

Dallas vann Minnesota, 108-105. Dirk Nowitzky skoraði 25 stig fyrir Dallas.

Houston vann Sacramento, 123-101. Chase Budinger skoraði 20 stig fyrir Houston og Kyle Lowry nítján auk þess sem hann gaf átta stoðsendingar og tók sjö fráköst.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×