Körfubolti

Baron Davis á leið til Cleveland

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Baron Davis og Mo Williams skipta um félög.
Baron Davis og Mo Williams skipta um félög.
Cleveland og LA Clippers hafa ákveðið að skipta á leikmönnum þar sem mesta athygli vekur að Baron Davis færir sig yfir til Cleveland.

Cleveland fær einnig valrétt í fyrstu umferð nýliðavalsins á þessu ári. Mo Williams og Jamario Moon fara yfir til Los Angeles.

Þetta er fyrsta skrefið í átt að uppbyggingu Cleveland-liðsins sem hefur hrunið síðan LeBron James yfirgaf skútuna.

Davis hittir fyrir hjá Cleveland fyrrum þjálfara sinn hjá New Orleans, Byron Scott.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×