Körfubolti

Arenas gæti átt yfir höfði sér fimm ára fangelsi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Lögreglan í Washington er búin að kæra Gilbert Arenas, leikmann Washington Wizards, vegna byssuatviksins sem átti sér stað í búningsklefa Wizards og hefur mikið verið fjallað um.

Verði Arenas fundinn sekur gæti hann átt yfir höfði sér allt að fimm ára fangelsi.

Hann hefur þegar verið settur í ótímabundið bann í NBA-deildinni og það án þess að fá laun.

 

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×