Fótbolti

Ronaldo sparkar í Del Horno - myndband

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid, kleif ekki vinsældastigann hjá mörgum um helgina þegar hann sparkaði viljandi í Asier Del Horno, leikmann Levante.

Hann slapp þó með skrekkinn því dómarinn virtist ekki hafa séð atvikið.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Portúgalinn skapbrái missir stjórn á skapi sínu.

Hægt er að sjá sparkið hér.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×