Körfubolti

Kobe og Iverson ekki með í stjörnuleiknum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Kobe Bryant og Allen Iverson hafa báðir dregið sig úr stjörnuleik NBA sem fram fer um helgina en báðir voru þeir kosnir í byrjunarlið leiksins.

Kobe er meiddur og hefur misst af síðustu leikjum Lakers. Jason Kidd mun taka sæti hans í byrjunarliðinu.

Dóttir Iverson er veik og hann hefur ekki spilað síðustu leiki Philadelphia til þess að vera við hlið dóttur sinnar. Sæti hans tekur David Lee, leikmaður NY Knicks.

Leikurinn fer fram aðfararnótt mánudags á hinum glæsilega heimavelli Dallas Cowboys, Cowboys Stadium. Leikurinn verður í beinni á Stöð 2 Sport.

 



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×