Lífið

Jóhanna Guðrún með nýja kærastanum á FM-hátíð

Söngkonan Jóhanna Guðrún á FM-hátíðinni ásamt nýja kærastanum.
Söngkonan Jóhanna Guðrún á FM-hátíðinni ásamt nýja kærastanum. Vísir/Vilhelm
Hlustendaverðlaun FM 957 voru haldin á Nasa á fimmtudagskvöld. Fjölmörg kunn andlit létu sjá sig á hátíðinni, þar á meðal söngkonan Jóhanna Guðrún sem mætti með nýjan kærasta upp á arminn. Dikta var sigurvegari kvöldsins með fern verðlaun.

Stutt er síðan Séð og heyrt greindi frá því að Jóhanna Guðrún væri kominn með nýjan kærasta. Hann heitir Davíð Sigurgeirsson og er gítarleikari í hljómsveitinni Perlu. Þau héldust í hendur á verðlaunahátíðinni og virtist fara vel á með þeim.

Stemningin á Nasa var mjög góð og að sjálfsögðu var fullt út úr dyrum.
Hljómsveitin Dikta stal senunni á hátíðinni með því að hrifsa til sín fern verðlaun. Hún var valin besta hljómsveitin og fékk verðlaun fyrir besta lagið, Thank You, og bestu plötuna, Get It Together. Haukur Heiðar Hauksson úr Diktu var sömuleiðis valinn besti söngvarinn.

Söngkona ársins var kjörin Emilíana Torrini og Páll Óskar hlaut verðlaun fyrir frammistöðu sína á tónleikum. Þá var popparinn Friðrik Dór valinn besti nýliðinn og rapparinn Erpur Eyvindarson besti sólótónlistarmaðurinn. 

Rapparinn Erpur Eyvindarson tekur á móti verðlaunum sem besti sólótónlistarmaðurinn.
„Þetta gekk fínt. Það var kjaftfullt hús og ógeðslega góð stemning. Dikta var klárlega sigurvegari kvöldsins," segir Svali á FM 957, sáttur við hátíðina. 

Sjónvarpsfólkið Friðrika Hjördís Geirsdóttir og Auðunn Blöndal veittu verðlaun.
Tónlistarmaðurinn Haffi Haff steig á svið og söng efni af sinni nýjustu plötu, Freak.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.