Körfubolti

Lið Phil Jackson búin að vinna 47 einvígi í röð þegar þau komast 1-0 yfir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Phil Jackson, þjálfari Los Angeles Lakers.
Phil Jackson, þjálfari Los Angeles Lakers. Mynd/AP
Mikilvægi 102-89 sigurs Los Angeles Lakers í úrslitaeinvígi NBA-deildarinnar í nótt verður enn mikilvægari eftir smá söguskoðun á gengi liða þjálfa Lakersliðsins, Phil Jackson. Lið hans hafa nefnilega unnið 47 einvígi í röð í úrslitakeppni þar sem þau komast 1-0 yfir.

Þetta byrjaði allt saman 27. apríl 1990 þegar Chicago Bulls vann heimasigur á Milwaukee Bucks og endaði síðan á því að vinna einvígið 3-1. Síðan þá eru liðin 20 ár, lið Phil Jackson hafa komist 46 sinnum í 1-0 og alltaf unnið.

Phil Jackson er á leiðinni að því að gera lið að NBA-meisturum í ellefta skiptið en hann bætti met Red Auerbach með tíunda titlinum í fyrra. Liðin hans Phil Jackson hafa alls unnið 222 af 317 leikjum sínum í úrslitakeppni (70 prósent).



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×